ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég hlustaði með athygli á ræðu hv. þingmanns vegna þess að líkt og hann sagði í niðurlagsorðum sínum er nauðsynlegt fyrir okkur Íslendinga að læra af öðrum, og þá er stundum gott, þótt það sé sárt, að læra af óförum annarra.
Það er að kristallast í umræðunni aftur og aftur hversu lítt hugsað þetta þingmál virðist vera af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það virðist ekki vera að menn sjái til lands. Menn eru lagðir af stað en sjá ekki til lands að því er virðist. Þetta er svona, hvað á ég að segja, getum við ekki orðað það þannig að þetta sé ferð án fyrirheits? Ég held að það sé kurteislega leiðin vegna þess að ég sé ekki betur en að málið eins og það er nú búið muni stranda á skeri, því miður. Það verður náttúrlega á kostnað þjóðarinnar.
Þess vegna er mjög mikilvægt að við lærum af reynslu annarra í þessum efnum. Við þekkjum það úr fyrri glímum okkar við erlent vald að ekki er á vísan að róa, hvorki hvað aðstoð annarra varðar, menn verða að hjálpa sér sjálfir, og að þeir aðilar, þ.e. mótaðilar í slíkum leik, beita fantabrögðum, þeir reyna að beita yfirráðum sínum, þ.e. yfirburðum sínum.
Þess vegna hljótum við að spyrja og ég spyr hv. þingmann: Hvað er til ráða til að (Forseti hringir.) Íslendingar verði ekki fyrir kárínum frekar en orðið er af þessu máli eins og það er sett fram?