149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:10]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Skildi ég hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson rétt þegar hann fór yfir heimildir ACER og skyldu ACER til að ryðja úr vegi öllum hindrunum fyrir viðskipti með raforku yfir landamæri? Það er þá þannig, ef ég skil hv. þingmann rétt, að þetta eru í rauninni valdheimildir sem ACER hefur til að uppáleggja þjóðríkjunum að fjarlægja þær hindranir sem upp kunna að koma. Í því samhengi skil ég það þannig að íslenska ríkið væri í rauninni sá aðili sem fengi í fangið þær kvaðir að framfylgja þeim (Forseti hringir.) skipunum frá ACER.