ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og mjög góða greiningu hvað þetta mál varðar. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður hefur greint þetta mál mjög vel, sem er nauðsynlegt. Gleymum því ekki að hér vitna ég í umsögn fyrrverandi utanríkisráðherra, Jóns Baldvins Hannibalssonar, okkar helsta sérfræðings í málefnum EES-samningsins. Hann kom að samningnum þegar hann var gerður í upphafi og menn skyldu ætla að hann þekkti þennan samning manna best. Ef ég vitna aðeins í hann aftur, með leyfi forseta, þá segir hann:
„EES-samningurinn tryggir aðildarríkjunum óvéfengjanlegan rétt til að hafna innleiðingu löggjafar á tilteknu málasviði, ef hún á ekki við eða þjónar ekki hagsmunum viðkomandi ríkis. Fyrir þessu eru mörg fordæmi.“
Ég held að þetta segi allt sem segja þarf hvað það varðar að við eigum að hlusta (Forseti hringir.) á okkar helstu sérfræðinga en ekki kaupa einhverja ráðgjöf erlendis frá, ráðgjöf manna sem komu t.d. ekki að samningsgerðinni sjálfri.