149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:40]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hún var góð. Hann las upp úr grein eftir hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur. Önnur grein sem hún skrifaði og samhljóða grein hv. þm. Vilhjálms Árnasonar hafa verið nokkuð til umræðu. Það virðist svo sem ákveðins misskilnings gæti eða hafi gætt við greinaskrifin. Það leiðir hugann að því enn og aftur hvort kynning málsins hafi verið með þeim hætti sem hægt sé að sætta sig við.

Mér dettur í hug í tilefni af þessum greinaskrifum sem hafa verið dálítið til umræðu, hvort það sé kannski ráð að geyma þetta mál aðeins, draga það aðeins til hliðar þar til í haust þannig að þeir sem bera það mest fyrir brjósti geti kynnt það betur, jafnvel fyrir sínum nánustu samstarfsmönnum. Hvað finnst hv. þm. þingmanni um að málið sé dregið aðeins til hliðar, því sé frestað aðeins? Við erum tala um september, tvo, þrjá mánuði, en sá tími gæti nýst vel, bæði til að kynna það inn í flokkana þar sem viss misskilningur virðist vera á sveimi, og að ég tali nú ekki um að kynna það fyrir öllum þeim stuðningsmönnum flokkanna sem virðast vera mjög ráðvilltir í afstöðu flokka sinna til orkupakkans. Hvað finnst hv. þingmanni um þessar hugleiðingar?