ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég held að það væri margra hluta vegna mjög farsælt ef menn nálguðust málið með þeim hætti sem þingmaðurinn leggur til og tækju málið af dagskrá, frestuðu því til haustsins og myndu nýta sumarið og kannski byrjun haustsins í að í fyrsta lagi ígrunda hvort sú leið sem ætlunin hafi verið að keyra hér í gegn hafi verið skynsamleg, og í öðru lagi að reyna að leggja mat á það hvort ekki sé skynsamlegt að vísa málinu til sameiginlegu EES-nefndarinnar á grundvelli 102. gr. EES-samningsins.
Það er nefnilega mikilvægt að halda því til haga að það að taka málið af dagskrá núna og fresta til haustsins þvingar ríkisstjórnina ekki til að vísa málinu til sameiginlegu EES-nefndarinnar, heldur gefur ríkisstjórnarflokkunum bara tíma til að ígrunda málið betur og skoða þær leiðir sem færar eru. Þá verða menn í þeirri stöðu í haust að taka ákvörðun um hvort menn leggja málið óbreytt fram með öllu og að því þá skoðuðu og væntanlega betur rökstuddu hvernig á því er haldið, eða þá að vísa því til sameiginlegu EES-nefndarinnar, eða einhver þriðja, fjórða útfærsla sem gæti komið til greina. En ég held að tíminn sem þinginu væri fenginn til að ígrunda málið betur gæti sannarlega verið gulls ígildi ef vel er á haldið.