ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég gleðst yfir orðum hv. þingmanns. Það er nefnilega eitt sjónarmið sem hefur verið uppi og við höfum reynt að rekja hér sem við best getum, þ.e. að málið sé þannig vaxið og af þeirri stærð að það sé í sjálfu sér ómögulegt eða vont að um það skuli ríkja pólitískur ágreiningur. Í sjálfu sér vona ég að þingmaðurinn sé sammála mér um það að í okkar augum sem höfum verið að malda í móinn, eins og við segjum, lítum ekki á það sem einhverja pólitíska „agentu“, afsakið, herra forseti, heldur að reyna að hafa góð áhrif á málið til betri vegar. Er þingmaðurinn ekki sammála mér um það að í svo stóru máli sem þessu sé nauðsyn á að mynda þverpólitíska (Forseti hringir.) afstöðu og stuðning við málið?