ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það hefur hvarflað að mér nokkrum sinnum í þessari umræðu, sérstaklega í nótt og fyrr í kvöld, að hv. þingmaður væri eflaust snilldarlögfræðingur, ef hann hefði valið sér þá starfsgrein. Hvað eftir annað nær hann að kryfja textann, undirliggjandi texta, og komast að kjarna málsins. Þegar ég hlýddi á ræðu hv. þingmanns núna sá ég eiginlega fyrir mér lögfræðing í kvikmynd — verjanda sem tæki að sér erfitt mál en með því að greina textann og finna kjarna málsins tækist honum að bjarga þeim sem hann væri að verja, sem í þessu tilviki er Ísland og íslenskir hagsmunir. Eitt af mörgu sem mér þótti mjög athyglisvert við yfirferð hv. þingmanns nú var þegar hann leiddi okkur fyrir sjónir hversu stór þáttur í þeim heildaráformum sem birtast í þriðja orkupakkanum litlu virkjanirnar eru, samtenging þeirra og tenging við stóra kerfið. Það rann upp fyrir manni ljós, birtist manni hvers vegna sú mjög svo áberandi þróun hefur átt sér stað að undanförnu að mjög er sótt í þessar litlu virkjanir og nýja orkukosti á Íslandi.
Er mér ekki óhætt að álykta að það sé einmitt vegna þess að menn eru komnir með væntingar um að þriðji orkupakkinn gangi eftir með þeim hætti að verð muni hækka og allur Evrópumarkaður opnist?