ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég vil endurtaka það sem ég hef áður sagt í þessari umræðu, að hv. þingmaður skýrir þetta mál væntanlega betur og kynnir það betur fyrir almenningi en ríkisstjórnarflokkunum hefur tekist það á þeim tíma sem málið hefur verið til meðferðar. Hann dregur fram mjög skýrt þær lagalegu flækjur sem að baki búa.
Svo virðist sem einhverjir haldi að Evrópusambandið sé skátaflokkur, sem það er ekki. Það er full þörf á varúð þegar átt er við kerfi af þeirri stærðargráðu sem þetta samband er. Þeim mun meira áríðandi er að koma vel nestaður til leiks og færa mál sitt þannig fram að það haldi.
Þá berast böndin að svokölluðum fyrirvörum sem eru á þessu máli af hálfu stjórnvalda.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann aðeins út í þessa fyrirvara vegna þess að ég hyggst jafnvel orða þá í ræðu einhvern tímann á eftir. Mér þætti vænt um að heyra frá hv. þingmanni hvað honum finnst um þá meintu fyrirvara sem eru á málinu eins og það er reifað af hálfu stjórnvalda, og þá í framhaldi af því hvað hann telur að væri hægt að gera öðruvísi og/eða betur í þeim efnum. Mér þætti afar vænt um að heyra í svari frá hv. þingmanni hvað varðar þetta tvennt.