ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig langaði aðeins að koma inn á hagsmuni Evrópusambandsins og Íslands þegar kemur að orkumálum. Við þekkjum það að í Evrópusambandinu er skortur á raforku. Það er orkuskortur og það er hátt verð á raforku í Evrópusambandinu. Þegar við horfum til Íslands er hins vegar engin þjóð sem framleiðir jafn mikið rafmagn miðað við íbúafjölda og Íslendingar. Það eru hagsmunir Evrópusambandsins að tryggja aðgang að raforku á sem lægstu verði — en hagsmunir Íslands eru þeir að við nýtum raforkuna til að efla okkar innviði, efla okkar iðnað og atvinnulíf og bæta lífskjör þeirra sem hér búa.
Þá erum við komin að sæstrengnum. Það er alveg augljóst mál að hann er lykill að þessu öllu saman. Innleiðing þessarar tilskipunar er bara skref í þá átt að undirbúa þennan sæstreng og þá mun ásókn í auðlindir okkar aukast. Þá komum við að sjónarmiðinu um að vernda náttúru Íslands og að loftslagsmálum. Nú er það svo að í forsæti þessarar ríkisstjórnar er flokkur sem hefur lagt ríka áherslu á loftslagsmál og umhverfismál. Þá spyr ég, og vil fá vangaveltur frá hv. þingmanni um það, hvað valdi því að flokkur sem hefur lagt ríka áherslu (Forseti hringir.) á umhverfismál skuli ekki hafa áhyggjur af því að fram undan, við innleiðingu þessa orkupakka, sé heilmikil uppbygging í raforkuvinnslu í landinu með tilheyrandi virkjunum o.s.frv.