149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:31]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég tek undir það sem hefur komið fram í máli þingmanna undir þessum lið. Ég held að það megi öllum skyni bornum vera ljóst að hér hefur verið lagt fram í málflutningi þeirra manna sem hafa lengst staðið mikið af álitaefnum um bæði framkvæmd og framlögn þessa máls sem varða miklu og að það megi vera ljóst að málið verður ekki leitt til lykta öðruvísi en að þeir sem fremstir fara fyrir komi að málinu. Ég held að sæmst væri að ítreka þá beiðni mína að fá forsætisráðherra að málinu og að hæstv. forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, myndi beita sér fyrir því, eins og hún hefur áður gert, að taka málið af dagskrá (Forseti hringir.) í bili og leita sátta.