149. löggjafarþing — 108. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:32]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ástæða þess að ég óska að ræða fundarstjórn forseta aftur er sú að hæstv. forseti hefur ekki brugðist við spurningu sem ég bar fram áðan, og fleiri, en ekki bara núna áðan heldur fyrir hálfum sólarhring síðan þar sem ég leitaði eftir svörum virðulegs forseta við þeirri að ég hefði talið tiltölulega einföldu spurningu hvar á jörðinni — ég geri enn ráð fyrir að hæstv. ráðherra sé á jörðinni — hæstv. utanríkisráðherra er staddur og hvenær megi vænta þess að hann mæti í þingsal til að svara þeim spurningum sem bornar hafa verið upp og bregðast við þeim fjölmörgu nýju atriðum sem hafa verið nefnd til sögunnar í þessu stóra og mikilvæga máli.