ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti vill upplýsa að því miður liggja upplýsingar ekki fyrir á þessari stundu um aðstöðu utanríkisráðherra eða annarra ráðherra en við munum beita okkur fyrir því að leita þeirra og upplýsa hv. þingmenn um það svo fljótt sem verða má.
Varðandi fyrirspurn um lengd fundartíma með tilliti til skipulags þess fallega dags sem nú er runninn upp er fyrirhugað að halda örlítið lengur áfram en það verður gefið meira svigrúm til að undirbúa sig fyrir nefndafundi og önnur verkefni dagsins og hlaða sig enn frekar orku fyrir verkefnin en við gerðum í gær. Það verður haldið stutta stund áfram.