ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Einn af þeim fræðimönnum og sérfræðingum sem hafa tjáð sig um þriðja orkupakkann er Eyjólfur Ármannsson lögfræðingur en hann er einn af þeim sem sendu umsögn til utanríkismálanefndar um þennan orkupakka. Þessi greinargerð eða umsögn lögmannsins er gríðarlega vel unnin og honum til mikils sóma og mig langar að vitna hér og hvar í hana, ekki mjög skipulega samt.
Á bls. 1 segir hann, með leyfi forseta:
„Raforka er ein helsta náttúruauðlind Íslands og eiga íslensk stjórnvöld að fara fram á endurupptöku málsins í sameiginlegu EES-nefndinni og óska eftir því að gerðirnar um raforku gildi ekki um Ísland, þar sem landið sé ekki hluti af innri raforkumarkaði ESB enda raforkudreifikerfi Íslands ekki tengt innri markaðinum. Sama á við gerðina um samstarfsstofnunina en hún felur í sér grundvallarbreytingu á innri orkumarkaðinum, þar sem með henni er verið að stofna yfirþjóðlega eftirlitsstofnun með markaðinum.“
Hann segir einnig á bls. 2 — þá er hann búinn að fara yfir hinn sameiginlega skilning orkumálastjóra ESB og utanríkisráðherra Íslands og ég verð eiginlega að segja að þar er ein setning sem verður að koma hér fram, með leyfi forseta:
„Að því er varðar innleiðingu þriðja orkupakkans á Íslandi eru aðstæður á Íslandi verulega frábrugðnar þeim sem eru til staðar í löndum þar sem orkunet tengjast yfir landamæri. Þess vegna hentar hið sérstaka fyrirkomulag fyrir Ísland, sem sameiginlega EES-nefndin samþykkti, þar sem komist er hjá allri ónauðsynlegri byrði, best fyrir íslenskar aðstæður.“
Hann segir:
„Óljóst er hvaða „sérstaka fyrirkomulag fyrir Ísland“ sameiginlega EES-nefndin samþykkti sem er „best fyrir íslenskar aðstæður“ en það sést ekki í ákvörðun hennar.“
Þetta er því stór spurning sem í sjálfu sér er ekki svarað. En hann kemst samt að niðurstöðu, þessi góði maður:
„Virðist því eiga að innleiða í íslenskan rétt mikilvæga þjóðréttarlega skuldbindingu varðandi helstu náttúruauðlind Íslands með reglugerð en endurskoða síðar — ef sæstrengur verður lagður — lagagrundvöll þeirrar reglugerðar og jafnframt að skoða þá hvort innleiðingin samræmist stjórnarskrá Íslands. Augljóst er að stjórnvöld eru sjálf í vafa um bæði lagagrundvöll fyrirhugaðrar eigin innleiðingar þjóðréttarskuldbindingar og hvort hún samræmist stjórnarskrá.“
Herra forseti. Þetta þykir mér gríðarlega athyglisverð niðurstaða, að stjórnvöld séu sjálf í vafa um lagagrundvöll fyrirhugaðrar eigin innleiðingar, þjóðréttarskuldbindingar og hvort hún samræmist stjórnarskrá. Lítið eitt síðar í þessari greinargerð eða umsögn segir, með leyfi forseta:
„Verði þingsályktunartillagan samþykkt er ekki verið að uppfylla þjóðréttarskuldbindinguna um að taka ESB-gerðir þrjár um raforku og þá um samstarfsstofnunina upp í landsrétt, samanber 7. gr. EES-samningsins. Einungis er verið að veita stjórnvöldum heimild til að samþykkja hana. Þingsályktun er hvorki lagasetning né heimild til stjórnvalda til setningar reglugerðar. Ef ætlunin er að fresta innleiðingu á ESB-gerðunum um óákveðinn tíma verður það að koma skýrt fram í þingsályktunartillögunni, svo er því miður ekki. Frestun á innleiðingu er ekki innleiðing þjóðréttarskuldbindingar.“
Herra forseti. Þau orð þessa sérfræðings eru enn eitt innlegg inn í þá umræðu sem hér hefur verið æ ofan í æ, bæði í kvöld og síðustu nótt, í gærkvöldi, í síðustu viku, um að þetta mál sé unnið í flaustri. Það ber að taka málið af dagskrá. Það ber að fara betur yfir það vegna þess að það eru sífellt fleiri atriði sem koma fram sem styðja einmitt það sem við höfum haldið fram allan þennan tíma um vanbúnað málsins og hversu illa það er undirbúið.