ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Í þessu máli ber allt að sama brunni. Málið er svo illa undirbúið, málið er svo veikt að í sjálfu sér er varla hægt að ræða það óklökkur hve illa þetta er gert. Enda er það þannig að niðurstaða þessa ágæta lögmanns sem ég vitnaði til, Eyjólfs Ármannssonar, er mjög einföld. Hann segir einfaldlega, með leyfi forseta:
„Alþingi á að hafna þriðja orkupakkanum og tilkynna það sameiginlegu EES-nefndinni. Slík málsmeðferð ógnar ekki EES-samningnum og er í fullu samræmi við ákvæði hans.“
Og hann segir:
„Þetta yrði í fyrsta sinn í 25 ára sögu EES-samningsins sem stjórnskipulegur fyrirvari er nýttur og máli vísað aftur til nefndarinnar, enda í fyrsta sinn sem ætlunin er að færa helstu náttúruauðlind Íslands undir erlent eftirlit og regluverk innri raforkumarkaðar ESB, markaðar sem Ísland er ekki hluti af.“
Mér þykir þetta nokkuð afdráttarlaust, herra forseti. Þetta er líklega þriðja eða fjórða lögfræðiálitið sem hnígur í þessa sömu átt, þ.e. að menn eigi einfaldlega að nýta þann rétt sem fyrir hendi er í 102. gr. EES-samningsins til að fara fram á að sameiginlega EES-nefndin taki málið fyrir af því að við munum hafna pakkanum eins og hann lítur út og til að fara fram á að hann verði þannig úr garði gerður að hann þjóni betur hagsmunum Íslands í bráð og lengd.
Þetta er í sjálfu sér það sem hér kemur fram í hnotskurn. Þetta er það, herra forseti, sem við verðum að halda áfram að berjast fyrir.