ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Það er auðvitað spaugilegt hvernig atburðarásin hefur þróast með þessum aragrúa fyrirvara. Ég leyfði mér að benda á í ræðu minni að kannski væru þarna tveir nýir í þessari færslu sem ég gat um miðað við hina fimm sem hv. þingmaður álítur sig hafa komið auga á. En auðvitað þarf að fjalla um það miklu nánar hér að hve miklu leyti fyrirvarar af þessu tagi geta haft áhrif á efni gerða sem eru innleiddar í íslenskan rétt. Mér er næst að halda að það sé ekki mikið svigrúm til þess og mun fjalla um það í ræðu, ekki síst með hliðsjón af 3. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 35 sem svo heitir.