ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Það er sannarlega mjög merkilegt og sérkennilegt til þess að hugsa að þessir þrír flokkar, miðað við forsögu þeirra, miðað við áherslur þeirra fyrr og síðar, skuli hafa sameinast í þessu máli með þeim hætti sem raun ber vitni. Hér liggur fyrir alveg skýrt álit viðurkenndra fræðimanna. Megintillaga þeirra er sú að farin verði leið í þessu máli sem styðst við ákvæði í EES-samningnum sjálfum og það ríkir engin lagaleg óvissa um þá leið. En einhvern veginn hefur orðið ofan á að fara leið sem er ferð inn á ókortlagt svæði. Það er óvissuferð, eins og hv. þingmaður gat um, algjör óvissa. Sömuleiðis er verið að veifa einhverjum lagalegum fyrirvörum sem náttúrlega engum heilvita manni dettur í hug að verði teknir alvarlega eða að viðurkennt verði að þeir hafi hið minnsta þjóðréttarlegt gildi sem nokkur dómstóll myndi líta við eða taka til greina sem alvarlegt (Forseti hringir.) málsgagn ef til einhverra málaferla kæmi.