149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:15]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M):

Herra forseti. Ég hef varið nokkrum ræðum í að fara yfir tilskipun 72/2009 og leitast við að skýra greinar þeirrar innleiðingar með tilliti til landsréttar annars vegar og þjóðaréttar hins vegar og svo með tilliti til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Í umsögn sem barst utanríkismálanefnd tengt þessari þingsályktunartillögu segir, með leyfi forseta, en þessi umsögn er frá hagsmunahópum Orkan okkar:

„Orkustofnun ber að vinna að samtengingum yfir landamæri sem er andstætt því markmiði að Alþingi taki ákvörðun um tengingar yfir landamæri.“

Þessum rökum eins og þau voru sett fram og flutt hér í fyrri umræðu og reyndar í síðari umræðu líka var hafnað af fylgismönnum þingsályktunartillögunnar á þeim forsendum að henni mætti hvergi finna stað í þessari innleiðingu. Ég er búinn að fara yfir akkúrat þetta atriði í nokkrum skrefum og svo skemmtilega vill til að fræðimennirnir Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst hafa komist að sömu niðurstöðu með hinni lagalegu aðferð og líklegt má telja að aðferðin sem þeir hafa beitt hafi verið að rýna í raunverulegar frumheimildir.

Með leyfi forseta, þá segir á bls. 23 í áliti þessara ágætu fræðimanna, og þar er um að ræða reglugerð 713/2009, sem er hluti af þeim gögnum sem fylgja orkupakka þrjú, með leyfi forseta:

„Gagnvart EES/EFTA-ríkjunum fer ESA formlega með valdheimildir ACER samkvæmt reglugerðinni, m.a. er formlegt vald til að taka lagalega bindandi ákvarðanir varðandi grunnvirki yfir landamæri samkvæmt 8. gr. reglugerðarinnar lagt í hendur ESA.

ACER hefur eftir sem áður mikið að segja um efni þeirra ákvarðana sem ESA tekur á grundvelli reglugerðarinnar. Skulu ákvarðanir ESA þannig teknar „á grundvelli draga“ sem ACER semur“ — þ.e. ACER, sem er stofnun sem heyrir undir Evrópubandalagið, skrifar drög og afhendir ESA, sem er eftirlitsstofnun EFTA — „að eigin frumkvæði eða að beiðni“ ESA. Berist beiðni um endurskoðun ákvörðunar skal ESA „senda slíka beiðni til [ACER]“ og skal ACER þá „íhuga að semja ný drög“ fyrir ESA sem yrði svo sambærilegur grundvöllur að nýrri ákvörðun ESA.“

„Íhuga“ — það er nú ekki kveðið fastar að orði, en drögin eru að niðurstöðunni og ákvörðuninni, drögin eru drög að ákvörðun. En ef ESA er ekki sátt við þessi drög er engin skylda lögð á herðar ACER að endurskoða þá ákvörðun. Þetta er grunnurinn í því að að forminu til heyri þetta ekki undir hið svokallaða tveggja stoða kerfi vegna þess að önnur stoðin er undirseld valdi hinnar, sem er stoð Evrópusambandsins.

„…skal ACER þá „íhuga að semja ný drög“ fyrir ESA sem yrði svo sambærilegur grundvöllur að nýrri ákvörðun ESA.“ — Það er sem sagt hægt að senda þetta aftur til ACER og biðja um ný drög en ACER þarf einungis að íhuga það, það er enginn áskilnaður. Þetta er gríðarlega þýðingarmikið atriði.

Ég ætlaði að komast lengra í þessari ræðu, hæstv. forseti, en verð bara að fá að halda áfram á eftir og óska eftir að ég verði settur aftur á mælendaskrá.