149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:27]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að hv. þingmaður sé ekki á villigötum þarna. Ég held að þetta sé nákvæmlega eins og málið er vaxið. Ég á satt að segja svolítið erfitt með að skilja hvernig fólk getur komist að annarri niðurstöðu vegna þess, eins og ég hef margoft komið inn á hér, að tilgangur Evrópubandalagsins, markmið þess og stefna eru að öllu leyti skýr. Bandalagið passar sig alveg á því að bæði reglugerðir og lög séu alveg skýr. Þeir passa sig líka á því að hafa þetta þó það opið að þetta gerist ekki allt í einu vetfangi, þannig að þeir setja ekki þar sem það á ekki við fortakslausar reglur sem ekki geta breyst heldur gefa þeir alltaf vísbendingu um það að í farvatninu sé eitthvað meira.

Núna er búið að gefa vísbendingu um að í farvatninu sé fjórði og fimmti orkupakkinn. Á því er von og þá ættum við að kynna okkur, alveg eins og við hefðum átt að kynna okkur betur þennan þriðja orkupakka og hvað í honum felst. Þannig að það er alveg ljóst að ACER mun í framtíðinni verða sú stofnun innan Evrópubandalagsins sem ræður þeim málum. Ég fór í gær eða fyrradag inn á blaðaviðtal við orkumálastjóra Evrópusambandsins þar sem hann lýsir því yfir að núna sé kominn tími til þess að gera gagngerar breytingar á því að það þurfi (Forseti hringir.) einróma samþykki ríkja til að breyta lögum um skatta og orkumál.