149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni fyrir ræðuna. Ég hef haft á tilfinningunni að vald ACER yfir orkumarkaðsmálum á þeim svæðum sem heyra undir eftirlitssvið stofnunarinnar sé hluti af, hvað skal segja, þeim ónotum sem Íslendingar sem hafa efasemdir um innleiðingu orkupakkans finna fyrir gagnvart málinu öllu. Í fyrsta lagi hefur öllum spurningum sem snúa að útfærslu og því hvernig valdsvið ACER mun raunverulega virka eftir lagningu sæstrengs, hvenær sem það verður, að hluta til verið svarað með skætingi, svo ég leyfi mér að nota hálfharðneskjulega lýsingu á þessu.

Mig langar að heyra hvernig þetta snýr að hv. þingmanni. Deilir hann þeirri skoðun minni að þessi tilfinning fyrir yfirgripsmiklu og alltumráðandi valdi ACER hvað orkumarkaðsmál varðar sé hugsanlega hluti af því að samkvæmt skoðanakönnunum er mikill meiri hluti þjóðarinnar andsnúinn því að við innleiðum þennan orkupakka? Hvernig horfir þetta við hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni?