ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni fyrir svarið. Það hefur verið raunin í gegnum þær stundir sem við höfum verið hér í sal Alþingis að ræða orkupakkamálin að ein spurning hefur iðulega kallað fram svör við einhverju sem liggur ívið dýpra í málinu í heild og varpar enn skýrara ljósi á það sem ég, eins og í þessu tilviki, hef haft tilfinningu fyrir og áhyggjur af, þessari alltumlykjandi stöðu stofnunarinnar þegar þar að kemur, eftir lagningu sæstrengs. Það endurspeglast vel í þessari samantekt þar sem reglugerðartexti er settur á mannamál ef svo má segja.
Er það tilfinning hv. þm. Jóns Þórs Þorvaldssonar að það sé gegnumgangandi í orkupakkanum og reglugerðunum, sérstaklega ef við horfum á 713 og 714, að textinn í frumgögnunum sé tiltölulega skýr hvað valdheimildirnar varðar en að einhverju marki settur í þann búning að líklegt sé að fólk í fyrstu atrennu upplifi ekki mikið valdframsal eða kannski réttara sagt mikið boðvald stofnunarinnar ACER á grundvelli reglugerðarinnar?