149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[20:52]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa hugleiðingu. Síðan sá sem hér stendur kom í stjórnmál árið 2013 hefur honum verið hugleikið hvernig einstök ríkisfyrirtæki leika lausum hala, ef þannig má að orði komast. Svo mikið er víst að á þessum árum, 2013–2016, varð ég greinilega var við þann einbeitta vilja sem Landsvirkjun hefur til að hér verði lagður sæstrengur. Það kom m.a. fram á fundum með forstjóra fyrirtækisins.

Nú vill svo til, þótt seint sé, að í dag var lögð fram fyrirspurn á Alþingi um útlagðan kostnað Landsvirkjunar vegna sæstrengs síðastliðin tíu ár. Þegar svar berst við þeirri fyrirspurn, væntanlega ekki meðan þessi umræða stendur, kemur í ljós hversu einbeittur vilji er til að framkvæma þetta. Þá verður hægt að velta upp spurningum eins og: Af hverju fór þetta verkefni í þennan farveg? Hver bað um það? Það var nefnd, man ég eftir, á sínum tíma, 2013–2016, sem fjallaði um undirbúning á sæstreng og þá kom út einhver skýrsla og maður hélt að hún yrði bara lesin og svo geymd. En það er einhver sjálfstæður vilji í gangi þarna sem maður veit ekki alveg hver er.

Það leiðir hugann að því hverjir það eru sem eiga að móta stefnu til framtíðar. Eru það stjórnmálamenn, sem bera á endanum ábyrgð með því að falla út af þingi, ef út í það er farið? Eða eru það embættismenn sem sitja í skjóli allan sinn starfstíma og hreyfast hvergi hvað sem á dynur? Mig langar til að fá hv. þingmann til að koma aðeins til móts við mig (Forseti hringir.) við að fara yfir þetta.