149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:25]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Herra forseti. Ég hafði hugsað mér að hefja umfjöllun mína um efnahagslegar afleiðingar þess að samþykkja þriðja orkupakkann, ekki hvað síst fyrir landsbyggðina. En ég er hræddur um að ég verði aðeins að fresta því af því að mér brá í brún rétt í þessu við að heyra hv. þm. Þorstein Sæmundsson upplýsa um þá upphæð sem undir væri í greiðslum ríkisins til, hvað þeir heita, Félags atvinnurekenda eða heildsala, 3 milljarðar kr. Þetta, herra forseti, er auðvitað mjög sláandi í samhengi umræðunnar um þriðja orkupakkann af ýmsum ástæðum.

Í fyrsta lagi er náttúrlega mjög margt sammerkt með málinu varðandi innflutning á hráu, ófrosnu kjöti og ógerilsneyddum matvælum og orkupakkanum. Það má rifja það upp að Íslendingar töldu sig í því tilviki vera með skýra fyrirvara varðandi þann innflutning og í ofanálag var bent á að þetta málasvið, landbúnaður og sjávarútvegsmál, heyrði ekki einu sinni undir EES-samninginn. Það kom fyrir lítið. Evrópusambandið var að vinna að sínum meginmarkmiðum og jafnvel í þessu máli sem varðar sáralitla hagsmuni ESB var litið fram hjá fyrirvörum Íslands og þeirri staðreynd að þetta átti ekki einu sinni að heyra undir EES-samninginn.

Þá að orkupakkanum. Hvað segir þetta okkur um orkupakkann og þá leið sem farin er við innleiðingu hans og þessa ímynduðu fyrirvara? Þegar um svona stórt hagsmunamál Evrópusambandsins er að ræða, mál sem er held ég að sé óhætt að segja annað af tveimur meginforgangsverkefnum Evrópusambandsins ásamt fjármálakerfinu, peningamálunum — og fyrirvararnir sem Ísland setur við innleiðinguna eru einhvers konar einhliða viljayfirlýsing í greinargerð — getum við rétt ímyndað okkur hvort Evrópusambandið muni ekki fara sínu fram.

Ástæðan fyrir því að ég rifja þetta upp, í framhaldi af þeim sláandi upplýsingum sem hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson sagði okkur frá áðan, er að einmitt er gert ráð fyrir sektarákvæðum í þriðja orkupakkanum. Það er gert ráð fyrir því að hægt sé að sekta orkufyrirtæki um ævintýralegar upphæðir ef þau fylgja ekki vilja ESB eða ACER eða þessa batterís alls, ef þau standa í vegi fyrir því að þróunin verði sú sem ESB vill sjá. Þegar ríkissjóður telur sig þurfa að greiða sektir eða skaðabætur eða hvað menn vilja kalla það upp á 3 milljarða kr. á tiltölulega stuttu tímabili vegna matvæla, vegna kjöts og osta sem Íslendingar framleiða og áttu ekki einu sinni að heyra undir þennan samning, ef það að íslenskur landbúnaður lýtur ekki vilja Evrópusambandsins og innflytjenda eða heildsala kallar á slíkar skaðabætur, hverjar geta upphæðirnar þá orðið í orkumálunum?

Hefur hv. þingmaður gert sér í hugarlund eða reynt að áætla hvert tjónið gæti orðið af því ef beitt yrði heimildum til að leggja á sektir í samræmi við þriðja orkupakkann þegar einhverjir væru á því stigi að reyna að spyrna við fótum og gera það sem þeir töldu í samræmi við íslenska hagsmuni en Evrópubatteríið teldi vinna gegn eða vera hindrun gagnvart markmiðum sínum?