149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:30]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Það ber í sjálfu sér allt að sama brunni í þessu máli. Ég held að við höfum einhvers staðar reiknað út í ferlinu að þessar sektir miðist jú við eiginfjárstöðu og veltu fyrirtækjanna, ef ég man rétt, og það er næsta víst að ef t.d. Landsvirkjun lenti í því að verða fyrir sektarálagningu samkvæmt þessu yrði þar um milljarða að ræða, það er næsta víst.

Menn hafa nú verið að stynja hér á Íslandi — velkominn í salinn, hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé — og verið að óskapast yfir því að Samkeppniseftirlitið sé að leggja á stjórnvaldssektir upp á nokkur hundruð milljónir. Þær eru hjóm eitt í þessum samanburði. Því er það áhyggjuefni að þær verða náttúrlega lagðar á alls óháð því hvort við kærum okkur um það eða ekki. Það læðist að manni ótti þegar samkeppni er farin að, má ég nota orðið bíta í? í þessum geira vegna þess að við erum með fyrirtæki sem eru annars vegar með um 70% markaðshlutdeild, hins vegar 20% og síðan 10%, og allt er þetta meira og minna í eigu opinberra aðila nema þessi 10% sem eru í eigu fjölda samtaka lífeyrissjóðanna.

Verði menn dæmdir eða fundnir sekir um að vera að skekkja hlutföll á markaði hlýtur það að enda með kröfu um að Landsvirkjun verði skipt upp og verði því neitað eru þessar sektargreiðslur yfirvofandi. Þetta (Forseti hringir.) vekur hjá manni verulegan ugg. Eða hvað finnst þingmanninum um það?