ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni fyrir andsvarið. Ég myndi leyfa mér að kalla þetta þversagnarkennt, það sem hann reifaði hér. Annars vegar gumar hæstv. utanríkisráðherra af því að hafa náð tali af embættismanni í Evrópusambandinu sem fer í einhverjum skilningi með orkumál. Hann nær að festa á blað einhverjar niðurstöður af samtali þeirra sem, eins og hér hefur verið lýst, fela í sér staðfestingu þess að orkumálastjóri viðurkennir að Ísland er eyja norður í ballarhafi sem hefur ekki raforkutengingu við meginland Evrópu eða Bretland.
Spurningin er ósköp einfaldlega þessi: Af hverju fylgir utanríkisráðherra þessu plaggi, þessari sameiginlegu yfirlýsingu, sem lýsir þessum skilningi á sérstöðu okkar, þessum skilningi þessa háa embættismanns í Evrópusambandinu, ekki eftir? Af hverju fylgir hann því ekki eftir þegar hér er búið að leggja fram sameiginlega yfirlýsingu EFTA-ríkjanna, Íslands, Noregs og Liechtensteins, sem var lögð fram á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar 8. maí sl., þar sem þessi þrjú ríki lýsa yfir einhvers konar samstöðu um sérstöðu Íslendinga?
Þarna er bara búið að malbika leiðina að því að fara með málið í sameiginlegu nefndina og leita eftir formlegri undanþágu af Íslendinga hálfu frá því að innleiða þessar gerðir, sem náttúrlega eiga ekkert erindi hér vegna þess að það er engin tenging — rétt eins og við erum ekki beðin um að innleiða einhverjar gerðir sem varða jarðgas, vegna þess að hér er ekkert jarðgas. Af hverju fylgja mennirnir þessu ekki eftir? (Forseti hringir.) Við hvað eru þessir menn svona óskaplega hræddir? Hefðu þessir menn kannski ekki haft þrek til að fara fram á þær undanþágur sem við fengum hér við gerð EES-samningsins og lúta að sjávarútvegsmálum? Maður spyr sig.