149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:10]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Forseti. Já, þetta mál verður ekki samþykkt hér á Alþingi á grundvelli verðleika sinna. Fari svo óheppilega og slysalega að það verði samþykkt verður það gert vegna þess að þær aðstæður hafa skapast í íslenskum stjórnmálum að stjórnmálaflokkar með langa og virðulega sögu, eins og til að mynda þeir þrír sem mynda ríkisstjórnarmeirihluta, hafa með einhverjum hætti orðið viðskila við uppruna sinn og hafa einhvern veginn glatað sínu hryggjarstykki, herra forseti.

Frá mínum bæjardyrum séð er þetta mest áberandi í Sjálfstæðisflokknum, sem gjörsamlega virðist skorta þá festu sem sá flokkur hefur lengst af í stjórnmálasögunni haft til að bera — og á stundum hefur munað þar verulega um. Ekki verður annað sagt en að oft hefur munað um Framsóknarflokkinn. En ekki nú. Hann er einhvers konar hækja í þessu samstarfi og er bara þakklátur fyrir að fá að hökta þarna með.

Ábyrgð Vinstri grænna, sem nú fara með stjórnarforustu í fyrsta sinn í sinni sögu, er auðvitað mjög mikil. Fyrir þeim er þannig komið að burðarásar í starfi þess flokks á liðnum áratugum lýsa því í fjölmiðlum að þeir þekki ekki sinn gamla flokk. Þetta mál er þannig vaxið að hér er ekki borg byggð á bjargi; hún er reist á sandi, herra forseti.