149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:13]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég ætla í þessari atrennu að fara meira yfir þá lagalegu fyrirvara sem ríkisstjórnin hefur sagt að séu það haldreipi sem eigi að duga svo stjórnarskránni verði ekki ógnað af innleiðingu þriðju orkutilskipunar Evrópusambandsins, sem ég endurtek að felur í sér ákvæði sem verulegum vafa er undirorpið að áliti lögfræðilegra ráðgjafa ríkisstjórnarinnar að standist íslensku stjórnarskrána. Líkast til hefur færst bros yfir andlit þingmanna stjórnarflokkanna þegar kynnt var að nú ætti að leggja fyrir Alþingi þriðju orkutilskipun Evrópusambandsins og að það yrði gert með svokölluðu lagalegum fyrirvara. Með því móti væri stjórnarskránni engin hætta búin og öllu óhætt, herra forseti. Andstaðan sem fréttir hefðu borist um að væri við málið, aðallega innan tveggja stjórnarflokka, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, gufaði hreinlega upp. Menn hafa líklega hallað sér makindalega aftur í sætum sínum og íhugað þvílík snilld þetta væri, málið var leyst: Við setjum bara lagalegan fyrirvara við málið.

Hver fann upp á þessu? Menn réttu upp hendur til merkis um samþykkt og brostu hver til annars. Öllu var óhætt með orkuauðlindirnar. Menn og konur vörpuðu öndinni léttar. Næsta mál, takk. En það er ekki svo einfalt, herra forseti. Það leit þannig út að búið væri að ganga þannig frá málum að fundin væri sú endanlega lausn sem fengi jafnvel hina mestu efasemdarmenn til að samþykkja málið. Ekki þurfti að hafa neinar áhyggjur af stjórnarskránni eða valdsviði orkumálastofnunar Evrópusambandsins. Algjörlega óhætt væri að aflétta stjórnskipulega fyrirvaranum og innleiða þannig þriðju orkutilskipunina vegna þess að tilskipunin yrði innleidd með lagalegum fyrirvara. Menn vissu ekki nákvæmlega hvað fælist í þessum lagalega fyrirvara — eða vissu menn það? Það virtist ekki vera svo því að þegar þingmenn Miðflokksins kölluðu ítrekað eftir þessum lagalega fyrirvara voru svörin afar misvísandi og komu misjöfn svör frá stjórnarþingmönnum eftir því hver þeirra varð til svara.

Nú eru a.m.k. til fimm útgáfur af því hver þessi fyrirvari er eða hvers efnis og nú hafa borist fréttir af því að nýlega hafi tvær nýjar uppástungur komið frá hv. þingkonu Framsóknarflokksins, en sá sem hér talar hefur ekki náð að rannsaka sannleiksgildi þessa eða hvort e.t.v. þar sé verið að stinga upp á einhverju nýju. Því virðist, herra forseti, sem sú góða vinna sem stjórnarliðar nefna svo, og sú mikla yfirlega sem stjórnarliðum verður svo tíðrætt um að hafi átt sér stað, hafi hreinlega ekki skilað sér betur en raun ber vitni til fótgönguliða stjórnarliðsins.

Ég ætla að fara yfir þessa fyrirvara. Í fyrsta lagi var bent á yfirlýsingu um sameiginlegan skilning hæstv. utanríkisráðherra og orkumálastjóra Evrópusambandsins og sjálfur sagði hæstv. ráðherra að yfirlýsingin hefði ekki bein lagaleg áhrif en að hún að hefði lagalega þýðingu í málinu. Sú yfirlýsing hefur auðvitað ekkert gildi, herra forseti, nema sem einhvers konar pólitískur greiði frá embættismönnum í Brussel og snýst aðallega um að maður að nafni Miguel hafi áttað sig á að Ísland væri eyja og að þeir væru báðir sammála að þessu leytinu.

Í öðru lagi var bent á sameiginlega yfirlýsingu EFTA-ríkjanna, en sú yfirlýsing áréttar einungis þá sérstöðu Íslands að landið sé ekki tengt Evrópu um sæstreng og að því sé ómögulegt að sinni að leiða þaðan rafmagn. Yfirlýsing hefur að því leytinu ekkert gildi hvað varðar innleiðingu þriðju orkutilskipunar Evrópusambandsins.

Í þriðja lagi var bent á breytingu á raforkulögum og ég hafði farið yfir það áður. Þar er viðbót við 9. gr. raforkulaganna, en er þetta sá lagalegi fyrirvari sem leitað hefur verið eftir, breyting á raforkulögum? Ef svo er hefðu menn svo sannarlega getað sparað sér þessa frumvarpsgerð því að þennan texta, nánast orðréttan, herra forseti, er þegar að finna í raforkulögum, 39. gr. a.

Hvers lags málatilbúnaður er þetta? Að breyta raforkulögum og kalla það lagalegan fyrirvara? Og svo þegar lögin eru lesin er nánast orðréttur sami texti þegar í lögunum. (Forseti hringir.) Hvaða fyrirvari er það?