ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir athugasemdir hans og ábendingar. Ég ætla aðeins að ræða um enn einn lagalegan fyrirvara sem svo hefur verið nefndur af hálfu einhverra stjórnarþingmanna. Mönnum hefur verið tíðrætt um reglugerð. Það er ekki ljóst hvaða reglugerð er verið að meina, herra forseti. Mér er það ekki ljóst, ekki enn. Er það reglugerð Evrópusambandsins sem við erum að fara að innleiða, nr. 713? Mér er það ekki fyllilega ljóst, vegna þess að í greinargerð með þingsályktunartillögunni er orðalag um að þessari reglugerð, líklega þeirri sem ég er að ræða, eigi svo að breyta ef eitthvað muni reyna á lagningu sæstrengs. Ég átta mig ekki á þessu orðalagi í þingsályktunartillögu, herra forseti. Ég átta mig ekki á því hvernig Íslendingar ætla að breyta reglugerð sem nær yfir allt Evrópusambandið, sérstaklega ekki ef það á að innleiða hana á öllu svæðinu. Ég átta mig ekki á því ef það er réttur skilningur.
En það gæti verið annar skilningur; þegar verið er að ræða um reglugerð, að það sé reglugerð sem er væntanleg. Ég hef fengið drög að reglugerð sem ég er með í höndunum og þarna er kunnuglegur texti í 3. gr. um raforkuvirki yfir landamæri, sem við áskiljum okkur að við munum stjórna lagningu á eða gefa leyfi eða ekki. Þá velti ég fyrir mér: Er þetta hinn lagalegi fyrirvari, þessi reglugerð? Hvaðan er hún upprunnin? Hún er upprunnin á skrifstofu hér uppi í Skuggasundi, í einu ráðuneytinu, og líklega undirrituð af einum ráðherra í ríkisstjórn Íslands þegar hún fæðist. Reglugerð ráðuneytisins.