ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þekkt er sagan af því, hvort sem hún er sönn eða ekki, að þegar Evrópusambandið var að innleiða sameiginlegt regluverk um járnbrautir hafi það ætlast til þess að Ísland tæki upp það regluverk. Þá hafi einhver dregið fram landakort af Evrópu og leitt mönnum fyrir sjónir að Ísland væri eyja. Það virtist koma einhverjum embættismanninum á óvart samkvæmt þessari sögu. En fyrir vikið fékkst undanþága, varanleg undanþága, frá sameiginlega regluverkinu um járnbrautir, enda töldu menn takmarkaðar líkur á því að Ísland yrði nokkurn tímann tengt við Evrópu með járnbraut.
Þá spyr ég í samhengi við þessa sögu: Því skyldi ekki fást varanleg undanþága hvað varðar tengingu með rafstreng? Er það vegna þess að menn telja að það séu allar líkur á því að Ísland verði tengt við Evrópu með rafstreng, ólíkt járnbrautunum, og hugsa sér þá að láta regluverk Evrópusambandsins gilda þegar þar að kemur?