ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég hef verið sérstaklega áhugasamur um að upplýsa almenning og þingheim um það hversu rafmagnsverð til heimila og fyrirtækja hefur hækkað við að innleiða þessa orkupakka frá Evrópusambandinu, þessar tilskipanir sem hér eru til umræðu. Nú er það orkupakki nr. þrjú og áður er búið að innleiða orkupakka eitt og tvö.
Við sjáum alveg ferlið, að verið er að færa rafmagnsverð til heimila og fyrirtækja alltaf nær og nær því sem er í Evrópu. Við þekkjum það að raforkuverð í Evrópu er hátt og margfalt hærra hér á landi. Þannig að þetta er áhyggjuefni sem ég hef verið að rifja hér upp, sérstaklega hvað varðar orkupakka eitt og tvö.
Í orkupakka þrjú er enn frekar verið að leggja grunninn að því að raforkuverðið hækki. Það er í tilskipun 2009/72 EB, sem er partur af orkupakka þrjú. Þar segir í f-lið 37. gr., með leyfi forseta, að það sé skylda eftirlitsyfirvaldsins „að tryggja að tryggja að engar víxlniðurgreiðslur séu milli flutnings-, dreifingar- og afhendingarstarfsemi“.
Með því er því verið að draga úr möguleikum hins opinbera til að niðurgreiða raforku til t.d. kaldra svæða, matvælaframleiðslu, samgangna og annarra verkefna sem kjósendur og kjörnir fulltrúar þeirra telja mikilvægt að styðja við með þessum hætti, eins og segja má. Ég vil spyrja hv. þingmann: Er það ekki áhyggjuefni að þingmenn skuli ekki vera vakandi yfir þessu? Hér er verið með hverju skrefinu á fætur öðru að hækka rafmagn til neytenda, heimila og fyrirtækja í landinu.