ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Það hefur líka komið fram við þessa umræðu hér og áður að þingflokkur Vinstri grænna hefur í gegnum tíðina verið alfarið á móti þeim orkupökkum sem hingað til hafa verið innsiglaðir, þ.e. nr. eitt og nr. tvö. Ef maður skoðar atkvæðagreiðslur fyrri tíma þá kemur það í ljós. En nú háttar svo til að Vinstri græn eru leiðandi í því að markaðsvæða orkuauðlindir Íslands. Og ég er enn, hv. þingmaður, að velta fyrir mér hvað hefur orðið til þess að þetta ágæta góða fólk tók sinnaskiptum. Ég er líka búinn að vera að velta fyrir mér, eins og menn hafa heyrt, hvað hefði gerst ef allir þessir flokkar, þ.e. Framsókn, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn, hefðu farið í kosningabaráttu síðast og sagt: Við ætlum að innleiða þriðju orkutilskipun Evrópusambandsins að 18 mánuðum liðnum. Ég velti því fyrir mér hvernig kosningaúrslitin hefðu orðið. Ég velti því fyrir mér hvað kjósendur þeirra sem eru æfir núna hefðu sagt.
Það leiðir mig að því að ég verð aftur að segja eins og konan fyrir norðan: Ég held að ég myndi vilja vera dauð fluga á vegg á laugardaginn í Valhöll og fylgjast með því sem þar fer fram. Það hlýtur að verða taumlaust fjör og stemmari mikill, afsakið, herra forseti. En ég get ekki skilið hvernig þetta ágæta fólk ætlar að útskýra fyrir kjósendum sínum, félögum sínum í grasrótinni, hvernig þessi sinnaskipti þeirra hafa átt sér stað. Ég næ því ekki.