149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:23]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég fór í síðustu ræðu minni yfir þá lagalegu fyrirvara sem ríkisstjórnin hefur sagt að væru það haldreipi sem gerði það óhætt að innleiða þriðju orkutilskipun Evrópusambandsins þannig að stjórnarskránni yrði ekki ógnað. Ég var búinn að fara yfir nokkra af þeim fimm möguleikum sem okkur voru gefnir hér af stjórnarþingmönnum þegar þeir hafa verið að benda á hvað í því fælist, hvar þessa lagalegu fyrirvara væri að finna.

Ég var búinn að fara yfir sameiginlega yfirlýsingu orkumálastjóra Evrópusambandsins og hæstv. utanríkisráðherra. Ég var búinn að fara yfir yfirlýsingu EFTA-ríkjanna og var kominn að fyrirvara sem sagður er vera sá lagalegi fyrirvari sem er að finna í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingu á raforkulögum, þ.e. breytingu á 9. gr. raforkulaga, þar sem skotið er inn einni málsgrein um tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annarra landa.

Ég velti því fyrir mér hvort þetta væri hinn lagalegi fyrirvari sem leitað hefur verið eftir. Ef svo er hefðu menn svo sannarlega getað sparað sér þessa frumvarpsgerð því að þennan texta er þegar að finna nánast orðréttan í raforkulögunum, herra forseti, í a-lið 39. gr. Þar að auki hefur hann ekkert að gera með innleiðingu orkutilskipunar hinnar margnefndu sem íslensk stjórnvöld munu skuldbinda sig til að innleiða með samþykkt þingsályktunartillögunnar sem hér er. Hann hefur ekkert að gera með það. Innleiðingin verður hvað sem líður breytingu á raforkulögum, sem er óþörf að mínu mati.

Í fjórða lagi hefur verið vísað í orðalag í greinargerð með þingsályktunartillögunni sem við ræðum hér, en sá texti boðar einfaldlega innleiðingu reglugerðar 713/2009 með hefðbundnum hætti en með lagalegum fyrirvara um grunnvirki sem gera mögulegt að flytja raforku milli Íslands og ESB, Evrópusambandsins. Þessi grunnvirki verða ekki reist nema að undangenginni endurskoðun á lagagrundvelli reglugerðarinnar, eins og það er orðað í greinargerð með þingsályktunartillögunni.

Orðalagið vekur athygli. Ekki getur þessi texti í greinargerð verið hinn lagalegi fyrirvari. Ekki getur það verið. Sérstaklega ekki þegar til þess er litið að þingsályktunin sem ætlað er að samþykkja hefur ekki lagagildi í sjálfu sér þótt hún væri samþykkt. Þingsályktanir eru viljayfirlýsingar Alþingis en ekki lög. Í greinargerð með þessari þingsályktunartillögu virðist þó að verið sé að boða komu þessa lagalega fyrirvara. Menn eru að verða spenntir gagnvart því hvað komi næst í þessari dauðaleit að hinum lagalega fyrirvara.

Í fimmta lagi: Nú nýverið kom frá stjórnarliðinu fimmta ábendingin um hvar og hver þessi lagalegi fyrirvari væri, eða, eins og hv. þm. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir orðaði það, með leyfi forseta:

„Hinn lagalegi fyrirvarinn sem vísað er til stendur í þingsályktunartillögunni sem við erum að ræða.“

Svo segir hv. þingmaður:

„Hann verður auðvitað tekinn beint upp í reglugerð þegar hún kemur.“

Hvar er sú reglugerð? Og hvar var sú reglugerð þegar málið var lagt fram?

Ég hef fengið í hendur drög að reglugerð sem er líklega það sem hv. þingmaður er að vísa til, líklega. Ekki reglugerð eins og títt er í Evrópu og skipar veglegan sess í Evrópulöggjöfinni. Nei, reglugerð á íslenska vísu. Venjuleg íslensk reglugerð, sem ætlunin er að ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar gefi út, þar sem tiltekinn er í 3. gr. fyrirvari um grunnvirki yfir landamæri.

Eigum við að trúa því? Halda menn að reglugerð sem samin er í ráðuneytinu og undirrituð er á skrifborði ráðherra hafi eitthvert vægi í þessu samhengi?

Halda menn það í fullri alvöru? Er þetta hinn lagalegi fyrirvari og munu þessir lagalegu fyrirvarar, ef einhver þeirra er nú sá rétti, halda þegar á reynir? Hvert er þjóðréttarlegt gildi þessara lagalegu fyrirvara sem ég hef verið að nefna? Hafa þeir eitthvert gildi ef við erum búin að innleiða tilskipun og reglugerðir Evrópusambandsins sem fylgja þriðju orkulöggjöf Evrópusambandsins?