149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:42]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Svo ég grípi boltann þar sem hv. þingmaður sleppti honum er þetta líka mál í andstöðu við vilja ASÍ, sem eru ein stærstu fjöldasamtök á Íslandi. Það er í andstöðu við Samtök garðyrkjubænda. Það er í andstöðu við Landssamband bakarameistara. Það er í andstöðu við bæði vinnandi stéttir og smáfyrirtæki.

Maður spyr því enn: Hvað veldur því að ríkisstjórnarflokkarnir og samfylkingarflokkarnir vilja keyra þetta mál á þessum hraða, svo illa unnið, svo illa búið, í gegnum þingið með þeim afleiðingum að ef þetta mál fer hér í gegn er það óafturkræft, nema með hlutum sem við kærum okkur kannski ekki alveg um og sjáum ekki alveg fyrir okkur? Ef og þegar í ljós kemur að þessi pakki hentar okkur ekki er eina leiðin út úr því að segja upp EES-samningnum í heild? Það er nokkuð sem ég held að enginn hér inni vilji. Alla vega viljum við það ekki.

Það eru hins vegar lögformlegar leiðir til að ná árangri gagnvart EES-samningnum, þ.e. að hafna orkupakkanum og senda hann í sáttameðferð til sameiginlegu EES-nefndarinnar og fá þar gerðar á honum nauðsynlegar endurbætur til að hann ógni ekki framtíðaröryggi íslensku þjóðarinnar. En það vilja menn ekki gera.

Ég velti því þess vegna enn fyrir mér: Hvers vegna í ósköpunum eru ríkisstjórnarflokkarnir og samfylkingarflokkarnir svona æstir í að innleiða þennan orkupakka í blóra við meirihlutavilja þjóðarinnar?