ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég tek eindregið undir þetta, það er með ólíkindum að stjórnarliðar sem reyna að keyra þetta mál í gegn skuli koma fram með þessum hætti og gagnrýna okkur Miðflokksmenn fyrir að vera með málþóf, eins og þau kalla það, í ljósi þess að þeir sömu þingmenn sem rætt er við í þessu viðtali hafa svo sannarlega staðið hér í ræðustóli Alþingis í sannkölluðu málþófi. Hér förum við fram á það að fá svör við spurningum sem ekki hefur verið svarað. Við höfum óskað eftir utanríkisráðherra. Við höfum óskað eftir umhverfisráðherra. Við höfum óskað eftir formanni utanríkismálanefndar og fleiri þingmönnum til að svara staðhæfingum sem settar hafa verið fram og það hefur ekki verið orðið við því. Ég segi bara, herra forseti, að ég undrast mjög að hv. þingmenn skuli hafa sett þetta fram eins og birtist í þessari frétt á netmiðlunum núna rétt fyrir tíu.