149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:42]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta er einmitt það sem málið snýst um í hnotskurn. Raforkuverð mun, að þessum pakka samþykktum, hækka. Það mun hafa áhrif á verðlag í landinu, sem mun hafa áhrif á lánskjör í landinu, sem mun hafa áhrif á verðtryggð lán í landinu. Þessi samþykkt mun í stuttu máli rýra lífskjör fólks og við eigum að koma í veg fyrir það eins og við mögulega getum með okkar verkum. Við eigum að koma í veg fyrir að verið sé að rýra lífskjör fólks. Það er þess vegna sem á að — og alþingismenn eiga að gera það allir — taka þetta mál til hliðar að fara aðeins betur yfir það, bæta það til að skera af því verstu vankantana, til að koma í veg fyrir að samþykkt þess rýri lífskjör fólks, til að koma í veg fyrir það að stjórnarskráin sé þanin til hins ýtrasta eða brotin, til að koma í veg fyrir það að Íslendingar missi fótanna í yfirráðum sínum yfir orkuauðlindum landsins.

Það á að koma í veg fyrir það að auðmenn sem nú þegar eru byrjaðir að hugsa sér til hreyfings í orkumálum á Íslandi fái yfirráð á auðlindum. Erlendir viðskiptafréttamiðlar segja: Besta fjárfesting á vesturhveli jarðarinnar er í orkuauðlindum á Íslandi. Við eigum að koma í veg fyrir það að við sem þjóð missum yfirráð í nokkru efni á þessum auðlindum.