149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:52]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir þessar vangaveltur og spurninguna. Hann orðaði það þannig að ég væri að flytja fréttir af leitinni að fyrirvörunum. Það er alveg rétt. Ég er mjög spenntur fyrir því að gera mér grein fyrir og átta mig á hvað stjórnarliðar meina með þessum lagalega fyrirvara. Þeir hafa ekki getað bent mér á hann svo óyggjandi sé. Nokkrir þingmenn hafa bent í ýmsar áttir og margt verið nefnt til sem lagalegur fyrirvari.

Það hefur enginn fulltrúi ríkisstjórnarinnar, eins og t.d. ráðherra, komið hér og bent mér á hann og sagt: Þarna er hann. Það er þetta atriði sem við meinum að sé hinn lagalegi fyrirvari. — Það hefur ekki gerst. Við höfum ekki enn þá, eftir allan þann tíma sem við höfum verið að fjalla um þetta, fengið ábendingu sem við getum treyst fullkomlega, að þarna sé verið að meina þann fyrirvara sem við viljum endilega skoða og velta upp og velta fyrir okkur hvort hann hafi eitthvert gildi.

Varðandi þá fimm fyrirvara sem við höfum verið að velta fyrir okkur, höfum við, a.m.k. ég, komist að þeirri niðurstöðu að þeir hafa ekkert gildi þegar búið er að innleiða reglur þriðja orkupakkans hér á landi. Þetta eru fallegar og góðlátlegar yfirlýsingar. Þetta er niðurstaða af einhverjum fundum, allt saman gott og ágætt til síns brúks, stundum pólitískt, stundum einhvers konar uppgötvun á staðreyndum eins og það að Ísland sé eyja og að hingað liggi enginn sæstrengur þegar menn hafi skoðað það; eða einhverjar reglugerðir sem undirritaðar eru uppi í Skuggahverfi hjá ráðherra í ríkisstjórn Íslands o.s.frv. Þetta hefur ekkert gildi þjóðréttarlega séð.