ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er svolítið áhugaverð nálgun sem hér hefur verið rædd og ætti að gefa gaum: Vill Evrópusambandið ekki alltaf vera með eitthvert mál fyrir dómstólum, eins og það sé eitthvað gaman að standa í þrasinu eða svoleiðis? En svo er náttúrlega alls ekki. Það er lögfræðilega mjög klókt af sambandinu og skilar gríðarlegum ávinningi að láta reyna á og prófa mál fyrir þar til gerðum yfirvöldum, hvort regluverkið og lögin virki eins og þeim var ætlað að gera. Eins og við vitum eru lögin mannanna verk. En lögunum má breyta, regluverkinu má breyta. Og það er það sem er gert í sífellu. Lögunum og regluverkinu er breytt ef niðurstaða dómstóla er á þá leið að það er ekki yfirvaldinu — Evrópusambandinu í þessu tilfelli, þeim sem semur reglurnar — nú vantar mig orðið, herra forseti …
(Forseti (BN): Að skapi.)
… að skapi, þakka þér fyrir, herra forseti, þá er hægt að breyta reglunum.
Getur hv. þingmaður kannski komið aðeins inn á þetta? Hvort þetta sé ekki akkúrat tilgangur þess að vera sífellt með mál fyrir dómstólum eða í einhvers konar dómi, að laga reglurnar að eigin geðþótta.