149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:18]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir svarið. Það er alveg hárrétt. Flugið er þess eðlis að það má margt læra af því og þeim aðferðum sem notaðar eru þar til að komast að niðurstöðu og ná einhverri framþróun í mál. Flugið er eins og allt annað sem við mennirnir komum nálægt, þar eru gerð mistök. Þar verða atvik og slys, misalvarleg. Þar höfum við kerfi sem er þannig jafnvel þó að menn geri mistök sjálfir og jafnvel þó að mistökin séu þess eðlis að þau brjóti í bága við lög, undirgangast þeir þær skyldur að tilkynna slíkt, tilkynna jafnvel sjálfa sig, sem er raunverulega þannig í nútímaréttarfari, vestrænu réttarfari, að mönnum ber ekki skylda til. Þeim ber ekki skylda að koma sjálfum sér undir sök.

En við gerum það á þeim forsendum að mönnum verði ekki gert að sæta refsingu ef þeir tilkynna. Það er gert til þess að finna ástæðu mistakanna fremur en að finna hver sé sekur, í þeim göfuga tilgangi að finna út hvað gert var rangt og koma í veg fyrir að mistök verði gerð aftur til allrar framtíðar.

Varðandi ræðu hv. þingmanns ber að hafa í huga að markmið og stefna Evrópubandalagsins breytist í sífellu. Nú er farið að setja fram stefnu sem varðar loftslagsmál og (Forseti hringir.) er sett fram til ársins 2050. Er það ekki eitthvað sem við ættum að hafa áhuga á?