149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:44]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, markmiðið er vissulega það, og ekki er dregin nein dul á það af hálfu Evrópusambandsins. Evrópusambandinu stendur fullur hugur til þess að stíga þetta skref til fulls. Allir sem hafa kynnt sér og tekið þátt í einhvers konar verkefnum sem snúast um fjárfestingu, þá kemur þar einkum til athugunar þegar ákveðið er að fara í fjárfestingar, stórar eða smáar, hversu dýr fjárfestingin er og hversu mikla fjármuni þarf að setja í verkefnið strax eða á þeim tíma sem verið er að byggja upp fjárfestinguna og síðan arðsemiskrafan. Hver er krafan á arðsemi fjármagnsins sem sett er í viðkomandi fjárfestingu?

Að sjálfsögðu þrýsta menn á um óvissuþáttinn, sem er regluverkið, vegna þess að í þessu tilfelli er óvissuþátturinn ekki auðlindin sem slík. Það er ekki eins og við séum að fara að grafa okkur í Hengilinn og hugsanlega komi þar upp olía eða gull, eitthvað sem við vitum ekkert um. Við vitum að hér eru fallvötn. Við vitum að hér er vindur sem hægt er að beisla, sem er orka og auðlind. En regluverkið er ekki á þeim stað að það sé tryggt að ef farið verður út í fjárfestinguna muni hún skila arði. Það gæti farið svo að Íslendingar væru með einhverja þvermóðsku og myndu ætla að halda því til streitu að auðlindin væri áfram í eigu þjóðarinnar, það myndi setja þessar áætlanir úr skorðum. Og um það snýst málið varðandi þessa fjárfesta og þrýstinginn sem þeir setja á stjórnvöld, að ég tel.