149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:01]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég óska eftir að mér verði bætt á mælendaskrá fyrir ofan Bergþór Ólason sem er á leið í hús.

(Forseti (SJS): Forseti hefur mótað þá reglu að færa menn aðeins einu sinni niður mælendaskrána. Við ætlum ekki að hafa hana eins og rúllettu.)

Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir góða ræðu. Um afstöðu Sjálfstæðisflokksins og forvígismanna hans frá því í mars 2018 — sem er ályktun atvinnuveganefndar Sjálfstæðisflokksins um iðnaðar- og orkumál, þar sem Sjálfstæðismenn mæla einum rómi — segir, með leyfi forseta:

„Auður Íslendinga felst m.a. í þeirri orku sem býr í fallvötnum, jarðefnum, iðrum jarðar og sjávar. Íslensk orkufyrirtæki eru í dag leiðandi á sínu sviði og sú þekking sem Íslendingar hafa skapað á þessu sviði á umliðnum áratugum er orðin að mikilvægri og gjaldeyrisskapandi útflutningsvöru. Sjálfbær nýting auðlinda er og á að vera grundvallaratriði í öllum ákvörðunum. Skýra þarf eigendastefnu ríkisins í orkufyrirtækjum. Landsfundur stendur heils hugar á bak við hugmyndir um atvinnuuppbyggingu innan lands í tengslum við hagkvæma nýtingu orkuauðlinda.

Íslensk útflutnings- og framleiðslufyrirtæki skulu njóta þess samkeppnisforskots sem felst í notkun á grænni íslenskri orku. Landsfundur leggst gegn því að græn upprunavottorð raforku séu seld úr landi.

Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.

Uppbygging á raforkuflutningskerfi landsins þarf að vera í takt við framleiðslu og eftirspurn eftir raforku með áherslu á dreifingu þriggja fasa rafmagns. Brýnt er að fara í frekari uppbyggingu flutningskerfisins, ekki síst til að bæta afhendingaröryggi raforku í einstökum landshlutum og auka um leið samkeppnishæfni þeirra.“

Er þetta ekki á skjön við það sem nú er boðað, hv. þingmaður?