149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:08]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég geri það svo sannarlega. Í málum sem þessum, þegar um er að ræða lögfræðileg málefni, horfa menn oft til fordæma. Við þekkjum dómafordæmi o.s.frv. Þegar kemur að þessum fyrirvörum og hvort þeir haldi, eins og hv. þingmaður nefndi hér, getum við horft í fordæmi. Við höfum fordæmi sem sýna okkur ótvírætt að fyrirvarar af þessu tagi, sem eru settir einhliða af öðrum samningsaðilanum, sem er í þessu tilfelli við, Ísland, hafa ekki haldið. Þar erum við að tala um hið svokallaða kjötmál sem hefur verið nefnt nokkrum sinnum í þessari umræðu vegna þess að það tengist mjög málinu. Við innleiddum alla matvælalöggjöf Evrópusambandsins 2009 sem kveður á um að hingað þurfi að flytja inn hrátt kjöt. Við höfum miklar áhyggjur af því að það geti skaðað okkar hreinu búfjárstofna og okkar hreina landbúnað og þess vegna setjum við fyrirvarana. Við setjum þennan fyrirvara án þess að hann sé gerður með hinum samningsaðilanum og í samráði við hann. Við setjum lög sem kveða á um svokallaða frystiskyldu, að allt kjöt sem komi til landsins skuli vera fryst í a.m.k. 30 daga. Síðan verðum við fyrir því að vera dæmd til að flytja inn hrátt kjöt. Frystiskyldan er dæmd ólögmæt. Þessi fyrirvari hélt ekki — hér höfum við fordæmið.