149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:10]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður kom inn á hlið þessa máls sem mér finnst verða jafnt og þétt meira áberandi, þ.e. hvernig umræðan um þriðja orkupakkann og framganga stjórnarflokkanna og þeirra flokka sem fylgja þeim að málum er að verða meira og meira lýsandi fyrir vanda stjórnmálanna nú til dags, reyndar ekki bara vanda stjórnmálanna á Íslandi heldur víðtækari vanda sem birtist í því að flokkar fara fram í kosningum, gefa alls konar loforð og taka svo við völdum að nafninu til en nota ekki völdin til að fylgja þeirri stefnu sem boðuð var fyrir kosningar.

Það er ekkert nýtt að flokkar séu sakaðir um að svíkja kosningaloforð. Munurinn er þó sá að nú virðast flokkarnir, a.m.k. þeir sem eru í ríkisstjórn núna, ekki sýna neina tilburði til að fylgja sinni stefnu. Ekki bara líta þeir fram hjá kosningaloforðunum heldur er stefnan farin fyrir bí líka. Það er sérstaklega áberandi í þessu máli þar sem allir þessir þrír flokkar höfðu mjög skýra stefnu í orkumálum, í fullveldismálum, að því er maður taldi. Jafnvel löngu eftir kosningar ítrekuðu forystumenn þessara flokka þá stefnu. Svo gerist eitthvað og þeir hverfa allt í einu frá henni, treysta sér reyndar ekki til að rökstyðja hvers vegna. Reyndar heyrist mér að þess megi vænta að hæstv. forseti komi senn í ræðustól. En hvað veldur því að þetta gerist í þessu máli?