149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:14]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Forseti. Varðandi þessa tylliástæðu sem ég held að sé óhætt að kalla svo, að menn óttist að EES-samningurinn fari í uppnám, nægir bara að benda á eitt af mörgu sem við höfum komist á snoðir um í þessum umræðum. Í eina álitinu þar sem var ýjað að slíku var þrátt fyrir allt tekið skýrt fram að það, þ.e. að nýta 102. gr., að vísa málinu í sáttaferli, myndi ekki valda neinum skaða. Einhverra hluta vegna kusu stjórnvöld, ríkisstjórnin, hæstv. ráðherra væntanlega, að líta fram hjá því, sleppa því atriði úr samantekt sem kynnt var fyrir þinginu sem segir manni bara að þetta er tylliástæða. Eitthvað annað hlýtur að liggja að baki því að allir þessir flokkar hverfa frá grundvallarstefnu sinni í þessu máli.

Það er ekki gott að segja hvað það er, sérstaklega vegna þess að þetta er mál sem þessir sömu flokkar halda fram á sama tíma að breyti engu. Það er ekki eins og hér sé um að ræða mál sem gangi gegn stefnu flokkanna og þeir geti þó sagt: Engu að síður teljum við þetta vera það mikilvægt mál fyrir samfélagið að við verðum að klára það. Nei, öðru nær, á sama tíma og þeir reyna að knýja það í gegn á næturfundum er því haldið fram að þetta sé mál sem breyti í rauninni engu.

Það er ekki heil brú í þessu en það á við um býsna margt í málflutningi stjórnarliða og aðstoðarflokka þeirra er varðar þriðja orkupakkann.