149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:19]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Forseti. Nú er komið að því að ég hefji umfjöllun mína um efnahagslegar afleiðingar innleiðingar þriðja orkupakkans.

Við höfum þegar rætt stuttlega um norska skýrslu sem lýsti því hvers væri að vænta þar í landi vegna innleiðingar þriðja orkupakkans. Það var svo sannarlega svört skýrsla, eins og Bændablaðið orðaði það. Þar er lýst verulegu efnahagslegu tjóni, sérstaklega fyrir landsbyggðina í Noregi. Því er lýst að þúsundir, jafnvel tugþúsundir, starfa muni tapast og samkeppnisforskot landsins vegna orkumála muni rýrna.

Allt það sem bent er á í norsku skýrslunni á ekki síður við hér á landi og raunar enn frekar vegna þess að hér er landsbyggðin, stærstur hluti þessarar eyju — sem er tiltölulega stór miðað við mannfjölda — í viðkvæmari stöðu, miklu viðkvæmari stöðu, víðast hvar, heldur en landsbyggð eða dreifbýli Noregs. Þar af leiðandi eru allar sveiflur sem gætu leitt af innleiðingu þessa þriðja orkupakka líklegri til að magnast upp í samanburði við norska dæmið.

Tökum bara eitt dæmi til að byrja með áður en ég fer að fjalla um heildarmyndina. Hversu mikil áhrif telja menn að það myndi hafa ef við misstum t.d. álverið á Austurlandi? Hversu mikil áhrif hefði það á þann landsfjórðung? Það hefði gífurlega mikil neikvæð keðjuverkandi áhrif fyrir byggðirnar þar, enda sáu menn hvers konar sköpum það skipti fyrir þann landshluta þegar ráðist var í þá framkvæmd og menn á vissan hátt náðu að snúa vörn, ég hugsa að megi kalla það nauðvörn, í sókn, eða a.m.k. grunn til að byggja á.

Ef þessi stóri vinnuveitandi hyrfi frá Austurlandi myndi það ekki eingöngu fela í sér að störfin í álverinu töpuðust. Það myndi hafa, eins og ég nefndi, gífurlega mikil keðjuverkandi áhrif á flest önnur starfssvið, því að fólkið sem vinnur í álverinu þarf að sjálfsögðu að kaupa sínar vörur og þjónustu, kaupa húsnæði eða leigja. Það nýtir sér þjónustu sveitarfélagsins og greiðir útsvar til þess. Með öðrum orðum, hinir atvinnuvegirnir myndu líða stórkostlega fyrir að þetta eina fyrirtæki hyrfi á braut og það myndu sveitarfélögin gera líka.

Er hætta á því að slíkur vinnustaður lokaði sem afleiðing af þriðja orkupakkanum? Veltum því aðeins fyrir okkur, forseti. Ef Íslendingar fara að flytja út orku á forsendum Evrópusambandsins og selja hana á sama verði og í Evrópu, selja hana úr einum sameiginlegum orkupotti þar sem öllu ægir saman; orku, framleiddri með kjarnorku, með gasbruna, olíubruna, kolabruna auðvitað sérstaklega, o.s.frv., orkan færi öll í einn pott, hrein og óhrein orka. Ef þetta tvennt færi saman, hærra orkuverð og orkan á Íslandi ekki lengur hreinni en annars staðar, hvaða samkeppnisforskot hafa menn þá? Hvaða ástæðu hafa álframleiðendur til að stunda framleiðslu sína hér á landi fremur en að stunda sömu framleiðslu til að mynda í Þýskalandi, í nágrenni við verksmiðjurnar sem nýta álið til að fullvinna það?

Hér á landi bætist við flutningskostnaðurinn, sem menn gætu sparað sér í Þýskalandi, verðið á rafmagninu væri hins vegar það sama og þetta væri í rauninni rafmagn úr sama potti, jöfn (Forseti hringir.) blanda af hreinu og óhreinu rafmagni.