ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir fyrir svarið. Ég ætlaði ekki að fara inn á þessar brautir alveg strax en ætla samt að gera það núna í ljósi svars hv. þingmanns. Það er hluti af því sem sérstaklega er flaggað í því sem við höfum nú þegar séð af innvolsi fjórða orkupakkans að áhersla á umhverfishlutann virðist aukast jafnt og þétt. Sér hv. þingmaður fyrir sér, af þeim gögnum sem þegar hafa verið sýnd, að hinn græni hluti íslensku orkunnar muni mögulega verða sérstaklega áhugavert framlag Íslands til hinnar samevrópsku orkustefnu eftir að tengingu hefur verið komið á?