149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:04]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta er býsna alvarleg yfirlýsing af hálfu Styrmis Gunnarssonar sem er og hefur verið mikill áhrifamaður innan Sjálfstæðisflokksins í áratugi. Og það eru fleiri þungavigtarmenn sem leggja orð í belg. Fyrrum formaður flokksins og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, hefur ekki farið í grafgötur með skoðanir sínar á framgöngu sinna flokksmanna í þessu máli. Það verður að segjast eins og er að það verður mjög sérkennilegt andrúmsloft, vænti ég, á 90 ára afmælisfagnaði flokksins sem verður núna um helgina. Það er eftirtektarvert að flokkurinn skuli fá, eftir að hafa átt farsæla sögu sem flokkur sem hefur staðið sig vel í utanríkismálum og baráttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði sínu og landhelginni o.s.frv., slík skilaboð frá þessum þungavigtarmönnum af þessu tilefni, á 90 ára afmæli flokksins.