149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:32]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir andsvarið. Það er vissulega rétt að Framsóknarflokkurinn er minni og á sennilega færri menn sem eru fyrrum leiðtogar eða hafa sinnt ráðherraembættum sem hafa verið virkir í stjórnmálaumræðu úti í samfélaginu. Þó er þar einn maður sem er fyrrverandi formaður flokksins, Jón Sigurðsson, sem eitt sinn var rektor í samvinnuskólanum á Bifröst. Hann hefur verið virkur í þjóðmálaumræðu en hefur verið þögull um þettsa mál að því er ég best veit.

Samvinnuhugsjónin var alla vega, og er nú enn þá, að ég held, hryggjarstykkið í stefnu Framsóknarflokksins. Samvinnuhugsjónin er í fullkomnum í anda þess sem ég ræddi áðan, þ.e. þess samfélagssáttmála sem sannarlega er í gildi og er lögfestur í hinum ýmsu lög og er í hinum ýmsu málaflokkum sem við störfum eftir og fjöllum um hér á hinu háa Alþingi upp á hvern einasta dag sem þing starfar, hvort sem það er í nefndum eða í þingsal.

Ég verð að segja að ég man ekki eftir öðru eins máli, nema ef vera skyldi Icesave, þar sem myndast hefur slík gjá á milli forystumanna ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar og nú, enda sýnir umræðan sem hér hefur átt sér stað að þetta er einsdæmi og verður skráð í sögubækur svo eftir verði munað.