ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það má alveg örugglega til sanns vegar færa. Til dæmis fannst mér eftirtektarvert hvernig formaður Framsóknarflokksins skrifaði og talaði sig að þeirri niðurstöðu að flokkurinn ætti að svíkja kosningaloforð sitt frá því í fyrra og styðja þetta mál. Mér fannst það mjög athyglisvert. Mér hefur líka fundist athyglisvert að hæstv. utanríkisráðherra er búinn að fara hring um landið prívat og við vitum ekkert hvort hann var að kynna orkupakkann eða kynna Guðlaug. Við höfum ekki hugmynd um það. Það kemur í ljós. En það virðist ekki vera að það ferðalag hafi skilað stórkostlegum stuðningi flokksmanna við orkupakkann, en kannski hefur það skilað miklum stuðningi við Guðlaug. Við vitum það ekki.
Hvað varðar Vinstri græn hefur formaður þess flokks ekki svo sem talað mjög mikið akkúrat um þetta mál. Það voru undirbúnar og óundirbúnar fyrirspurnir um daginn, þrjár í röð fyrir hæstv. forsætisráðherra um málið. Ég gat ekki heyrt á svörum hennar að hún væri eitthvað brennandi í andanum eða hefði á þessu miklar og stórar skoðanir sem hún alla vega vildi úttala sig um hér.
Hins vegar held ég að þessir þrír flokkar eigi það sameiginlegt að þeir eru ekki að hlusta. Ég held að það séu kannski stærstu mistökin. Hvort sem þessu máli verður böðlað í gegn eins og margt bendir til, eða ekki, þá held ég að þessir þrír flokkar hafi við meðferð málsins glatað töluverðu af trúverðugleika sínum.