ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég vil halda aðeins áfram að ræða um hina svokölluðu neytendavernd sem stjórnarflokkarnir hafa haldið mjög á lofti og auk þess stjórnarandstöðuþingmenn sem styðja þetta mál. Þau hafa haldið því fram að það sé svo mikilvægt fyrir okkur að samþykkja þetta af því að það sé svo mikil og aukin neytendavernd fyrir okkur að innleiða þennan orkupakka og að í fyrri orkupökkum hafi falist aukin neytendavernd.
Þá er rétt að skoða ofan í kjölinn hvort þetta fái yfir höfuð staðist. Því hefur verið haldið fram af þessum sömu aðilum að það sé aukin samkeppni, neytendur geti núna lækkað rafmagnsreikning sinn með því að fá tilboð frá orkusölum í orkuna og þar með megi lækka rafmagnsreikning heimila og fyrirtækja.
Í þessu sambandi langar mig að benda á, herra forseti, að það er ekki svo langt síðan Neytendasamtökin ákváðu að bjóða út rafmagnsverð fyrir félagsmenn sína. Þetta útboð var gert í samstarfi við Hagvang og markmið útboðsins var tvíþætt. Í fyrsta lagi að reyna að fá hagstæðara verð á rafmagni fyrir félagsmenn samtakanna og í öðru lagi til að ýta undir samkeppni á þessum markaði. Þarna ætluðu Neytendasamtökin að nýta sér þá auknu neytendavernd sem er svo margsinnis búið að segja að felist í þessum orkupökkum. Niðurstaðan er mjög athyglisverð.
Það vildi svo til að þetta útboð sem Neytendasamtökin fóru í fyrir sína félagsmenn leiddi til þess aðeins eitt fyrirtæki sendi inn tilboð. Það var Orkusalan, dótturfyrirtæki Rariks, sem bauð 0,65% afslátt frá gildandi verðskrá. Það var nú allur afslátturinn og allur ávinningurinn sem fylgdi þessari auknu neytendavernd sem var innleidd í þessum orkupökkum að sögn þeirra sem töluðu hvað mest fyrir því að innleiða þá.
Ljóst er því að hér er um mjög takmarkaðan ávinning að ræða fyrir neytendur. Í framhaldi ákváðu Neytendasamtökin að hafna þessu tilboði. Að mati samtakanna staðfesti þessi niðurstaða að það er fákeppni, það er engin samkeppni. Það verður engin samkeppni. Þetta er svo lítill markaður. Raforkuverðið er lágt og neytendur hafa lítinn ávinning af því að beina viðskiptum sínum til annars aðila en þeir eru þegar í viðskiptum við. Þessu höfum við haldið fram, Miðflokksmenn, og rétt að þetta sé staðfest hér með rökum vegna þess að allt sem við segjum er rangtúlkað og mistúlkað af stjórnarþingmönnum og þeim sem styðja þetta frumvarp, segja að við förum með rangt mál o.s.frv. En hér höfum við það alveg staðfest að Neytendasamtökin fór í útboð og vonuðust til þess að það væri hægt að lækka rafmagnsreikning félagsmanna en það reyndist ekki. Við sjáum nú hver öll þessi neytendavernd er. Hún er engin. Það þýðir að það er gagnslaust að fara á milli orkusala og reyna að fá tilboð og það hefur sýnt sig að þeir sem hafa skipt um orkusala eru afar fáir. Við erum búin að nefna þá tölu hér. Verkfræðistofan EFLA gerði skýrslu um þessi málefni og þá kom í ljós, eins og við höfum nefnt hér, að 0,3% heimila í landinu hafa skipt um orkusala, 370 heimili af 140.000. (Forseti hringir.) Það segir allt sem segja þarf um þessa svokölluðu neytendavernd, herra forseti.