149. löggjafarþing — 109. fundur,  24. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:19]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, það er margt sem bendir til þess, eins og hv. þingmaður nefndi, að verið sé að leggja grunninn að því að við verðum með sömu verðskrá og á meginlandi Evrópu þegar kemur að raforkumálum og í nágrannalöndunum. Þar eru náttúrlega gífurleg forréttindi eiga ódýra orku og orku auðlindir eins og við Íslendingar berum gæfu til að eiga. Það er mikil blessun að búa í okkar harðbýla landi með allar þessar auðlindir og ódýra orku.

Ég er hræddur um að mörgum myndi bregða í brún ef við myndum upplifa þann dag hér að við þyrftum að fara að borga meira fyrir að elda kvöldmatinn. Við erum ekki vön slíku. Það fyrirkomulag er í þó nokkrum löndum, eins og hv. þingmaður nefndi. Það sýnir bara hvaða hættur, ef má orða það þannig, bíða okkar gagnvart neytendum, almenningi í þessu landi ef við undirgöngumst þessar tilskipanir allar möglunarlaust án þess að reyna nokkuð að fá undanþágu í ljósi sérstöðu okkar.

Helstu sérfræðingar sem þekkja þessi mál hafa talað um þetta. Ég vitnaði t.d. í Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem lagt hefur ríka áherslu á að við eigum að sækja um undanþágu og nýta okkur ákvæðið sem er í samningnum. Fleiri hafa talað í þá veru og hér hefur verið nefnt að það sé mikilvægt að hlusta á þá sem reynsluna hafa og þekkinguna í þessu. Ég tek alveg heils hugar undir það.