ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta er mjög áhugaverð spurning hjá hv. þingmanni: Erum við að missa af einhverju? Er eitthvað sem okkur yfirsést þegar kemur að neytendavernd? Auðvitað spyr maður sig að því þegar þingmenn koma hér, og sérstaklega af hálfu Viðreisnar, ég skal taka undir það, alveg galvaskir og segja að hér sé neytendavernd á ferðinni og að við eigum að samþykkja þetta fyrst og fremst í ljósi þess. Þetta hafi engin slæm áhrif, þetta sé allt til bóta o.s.frv. Svo er hægt að hrekja þessi rök alveg endalaust.
Ég þekki þetta sjálfur á eigin skinni. Ég kyndi heimili mitt með rafmagni, ég nýt ekki þeirrar gæfu að hafa hitaveitu eins og margir. Hitaveita er mikil lífsgæði. Það eru líka mikil lífsgæði að eiga ódýra orku. Ég hef reynt að skipta um orkusala og hef átt samtöl við þá aðila sem selja orku, greiða götu okkar í því að skipta um orkusala. Ávinningurinn er svo lítill að það tekur því ekki að standa í því. Þannig að ég þekki þetta mjög vel persónulega.
Það er auðvitað mjög dapurlegt þegar þingmenn ganga fram með þessum hætti og fara hér með hluti sem standast ekki. Tölurnar sýna það bara, líka það sem ég nefndi áðan þegar Neytendasamtökin fóru í sérstakt útboð fyrir umbjóðendur sína í því augnamiði að reyna að lækka raforkuverðið. Þá var eitt fyrirtæki sem sendi inn tilboð og var lækkun upp á 0,65%. Það er nú allur ávinningurinn, þannig að ég held að það sé ábyrgðarhluti af þingmönnum að halda svona hlutum fram.